Gögn skila betri upplifun viðskiptavina: Verðlaunasamstarf Gangverks og Fullstory
, By Gangverk

Í síðasta mánuði sögðum við frá því að Gangverk hefði hlotið Rising Star Partner of the Year-verðlaun frá Fullstory. Viðurkenningin er staðfesting á farsælu samstarfi fyrirtækjanna en Fullstory er leiðandi á sviði greiningar á stafrænni upplifun. Saman hjálpa Fullstory og Gangverk fyrirtækjum að öðlast betri skilning á viðskiptavinum sínum og bæta upplifun þeirra á stafrænum vettvangi.
Dýpri innsýn: Fullstory × Gangverk
Fullstory hjálpar fyrirtækjum að taka upplýstari ákvarðanir með því að veita þeim aðgang að vönduðum hegðunargögnum í gagnagreiningarumhverfi sínu. Þannig geta fyrirtæki komið auga á áður óþekkta þætti í hegðun notenda, bætt upplifun viðskiptavina, aukið hlutfall þeirra sem ljúka kaupum, greint svik og fundið verðmætustu viðskiptavinina.
Einn helsti styrkur Fullstory felst í einkaleyfisvarinni tækni sem gerir fyrirtækinu kleift að safna og greina stafræn hegðunargögn í stórum stíl. En hvað þýðir það í raun? Smellir, skrun og önnur hegðun notenda á stafrænum miðlum eru skráð og greind, sem gefur nákvæma mynd af notendaupplifuninni.
Þessi ítarlega innsýn er afar verðmæt fyrir Gangverk. Hún gefur hönnuðum og forriturum okkar heildstæða mynd af því hvernig viðskiptavinir nota stafrænar lausnir og gerir okkur kleift að þróa upplifanir sem eru bæði notendavænar og grípandi.
Við byrjum yfirleitt á því að innleiða Fullstory til að öðlast skýra mynd af núverandi notendaupplifun. Þá greinum við meðal annars hvar notendur lenda í hindrunum eða hætta í ferlinu. Þegar við höfum öðlast góðan grunnskilning getum við hafist handa við stigvaxandi umbætur og fylgst með áhrifum nýrra eiginleika um leið og þeir eru teknir í notkun. Rauntímagögn Fullstory gera okkur kleift að sjá áhrif breytinganna og meta hvort þær skili tilætluðum árangri. Þannig höldum við stöðugt áfram að bæta upplifun notenda.
Fullstory auðveldar ekki aðeins greiningu á hegðun notenda heldur einnig samstarf ólíkra teyma. Með samþættingu við kerfi á borð við Twilio Segment geta teymi á sviði hönnunar, markaðsmála, hugbúnaðarþróunar og þjónustu við viðskiptavini unnið saman á skilvirkari hátt.
Samspil Fullstory og Twilio Segment
Fullstory veitir mikilvæga innsýn í hegðun notenda, en samstarf okkar við Twilio Segment eykur enn frekar möguleikana á að nýta gögnin.
Hægt er að innleiða Fullstory á einfaldan og fljótlegan hátt í gegnum Segment. Segment safnar saman stafrænum merkjum frá ólíkum samskiptum viðskiptavina og sameinar þau í ítarlegan notendaprófíl. Fullstory nýtir síðan þessi gögn til að greina hegðun notenda og gefa mikilvæga innsýn.
Samþættingin gerir fyrirtækjum kleift að finna, forgangsraða og leysa vandamál í notendaupplifun með skjótum hætti. Þannig má draga úr hindrunum í notendaferlinu og auka líkur á að notendur ljúki þeim aðgerðum sem að er stefnt. Saman veita þessir tveir vettvangar fyrirtækjum heildstæða og ítarlega mynd af samskiptum viðskiptavina sem hægt er að byggja ákvarðanir og umbætur á.
Fullstory skráir og greinir gögn um stafræna upplifun og bætir þannig við styrkleika Segment í að sameina viðskiptavinagögn frá ólíkum snertiflötum. Samþættingin brýtur niður gagnasíló og skapar sameiginlega og áreiðanlega gagnauppsprettu. Með því að sameina ítarlega greiningu Fullstory á notendalotum og öfluga gagnastjórnun Segment geta fyrirtæki greint nákvæmlega hvar og hvers vegna notendur mæta hindrunum.
Gangverk nýtir síðan þessa innsýn til að þróa stafrænar lausnir sem bæta upplifun viðskiptavina, styðja við vöxt og auka tryggð þeirra.
Áþreifanlegur árangur samstarfsins
Samstarf okkar við Fullstory og Twilio Segment hefur skilað viðskiptavinum okkar umtalsverðum árangri.
Bætt bókunarupplifun hjá flugfélagi
Með hjálp Fullstory aðstoðaði Gangverk flugfélag við að bæta bókunarferlið til muna. Við greindum alvarlegan vanda í notendaviðmótinu sem olli því að 48% notenda hættu við bókun þegar komið var á greiðsluskrefið.
Ítarleg hegðunargögn Fullstory gerðu okkur kleift að greina að villuskilaboð í viðmótinu voru ekki nægilega sýnileg notendum. Gangverk nýtti sérþekkingu sína á notendaupplifun og viðmótshönnun til að bæta úr vandanum og gera bókunarferlið mun betra. Niðurstaðan var aukinn fjöldi vel heppnaðra bókana.
Minni öryggisáhætta við bókun skemmtisiglinga
Með því að nýta greiningargetu Fullstory og samþættingarmöguleika Segment hjálpaði Gangverk skemmtiferðaskipafyrirtæki að koma auga á og bregðast við alvarlegri öryggisáhættu þar sem viðkvæmar upplýsingar um viðskiptavini voru berskjaldaðar.
Segment sá um að safna saman og halda utan um hegðunargögnin en Fullstory greindi þau og hjálpaði til við að finna gagnalekann. Innsýnin gerði fyrirtækinu kleift að ráðast fljótt í nauðsynlegar öryggisráðstafanir, þar á meðal að nota hakkgildi (e. hashing) til að vernda gögn og framkvæma ítarlega úttekt á kerfinu. Þannig var hægt að styrkja persónuvernd og tryggja að meðhöndlun gagna samræmdist viðeigandi reglum.
Framtíðarsýn okkar í samstarfi
Fullstory er mikilvægur samstarfsaðili í þeirri vegferð Gangverks að hjálpa fyrirtækjum að verða leiðandi í upplifun viðskiptavina.
Með því að dýpka stöðugt skilning okkar á hegðun notenda og þróa stafrænar upplifanir sem mæta þörfum þeirra hjálpum við viðskiptavinum okkar að ná árangri og vaxa á sífellt samkeppnisharðari mörkuðum.