Hönnunarsýn Gangverks
, By Birgir Baldursson

Nr. 1 – Við trúum því að hönnun sé þjónusta
Við vinnum með viðskiptavinum í langtímasamstarfi og sköpum merkingarbærar lausnir í nánu samstarfi. Þjónustan okkar felst í skapandi lausn vandamála og við þurfum að skilja vandamálin sem við erum að reyna að leysa. Þess vegna trúum við á að véfengja forsendur og setja okkur í spor notenda áður en við búum til lausnir.
Nr. 2 – Við trúum á ítrun
Við leitum alltaf bestu lausnanna en gerum okkur grein fyrir því að þarfir breytast og að ekkert verður nokkurn tíma fullkomið. Þess vegna trúum við á að ítra allt sem við gerum: rannsóknir, hönnun, ferlið okkar og það sem þegar hefur verið gefið út.
Nr. 3 – Við trúum á teymisvinnu
Hönnuðir vinna í sjálfstæðum teymum með fólki úr öðrum greinum sem smíðar og gefur út það sem við hönnum. Allt teymið tekur þátt í hönnunarferlinu, því við trúum því að bestu hugmyndirnar sem hægt er að hrinda í framkvæmd verði til í þverfaglegu samstarfi. Þannig fáum við allt teymið með okkur og tryggjum að hægt sé að smíða það sem við hönnum.
Nr. 4 – Við trúum því að hönnun sé persónuleg
Við höfum ólíkar þarfir og óskir um hvernig við hönnum. Það sem við þurfum getur ráðist af verkefninu, hvar við erum stödd í ferlinu eða hvernig okkur líður þegar við vöknum á morgnana. Þegar einhver þarf að vera einn heima og rýna í pixla virðum við það. Þegar einhver þarf annað sett af augum á frumgerð hjálpumst við að. Við trúum því að hönnuðir blómstri best þegar þeim er treyst til að vinna sjálfstætt en hafa jafnframt stuðning félaga sinna.
Nr. 5 – Við trúum á að hafa gaman
Þessi er einföld: við elskum það sem við gerum og trúum því að við vinnum best þegar við náum líka að hafa gaman. Við höldum í fastar hefðir og samverustundir þar sem við fáum stuðning og verjum tíma með öðrum hönnuðum, sem við nýtum í umræður um fagið, vinnustofur, samtöl við hönnunarstjóra, hönnunarfundi fyrir hvern samstarfsaðila, upphitun á mánudögum og hittinga utan vinnustaðarins.
Nr. 6 – Við trúum á að aðlaga hönnunarferlið
Við erum með hönnunarferli og reynslan sýnir að það skilar gæðalausnum að fylgja því. Þar sem hvert verkefni er einstakt trúum við þó einnig á að laga ferlið að ólíkum þörfum hvers verkefnis.
Áfangarnir, sem við förum í gegnum á ólínulegan hátt, eru eftirfarandi:
Samkennd
Allt hefst á því að skilja reksturinn og setja sig í spor notenda. Við fylgjumst með því sem þeir gera, hlustum á það sem þeir segja og reynum að skilja hvað þeir þurfa.
Skilgreining
Við skilgreinum vandamálið sem á að leysa og setjum mælanleg markmið til að tryggja að lausnin skili notendum okkar og samstarfsaðilum sem mestu virði.
Hugmyndavinna
Hugmyndir koma alls staðar að og frá öllum. Stundum kvikna þær á skipulögðum vinnustofum, stundum þegar við erum ein úti að hlaupa.
Frumgerðir
Við búum til frumgerðir til að útfæra hugmyndir og vinna saman. Þær geta verið skissur, wire frames, flæðirit, nákvæmar útlitstillögur og gagnvirkar frumgerðir.
Prófanir
Við notum frumgerðirnar til að sannreyna lausnirnar okkar. Við sýnum þær hagaðilum í rekstrinum, fylgjumst með hvernig notendur nota þær og hlustum á hvað þeim finnst.
Afhending
Við gefum út það sem við hönnum. Vinnan heldur áfram, því við eigum í langtímasambandi við samstarfsaðila okkar. Við fylgjumst með hversu vel lausnirnar ná markmiðum okkar og höldum áfram að læra og bæta þær.