Gangverk og Vertonet: Konur í tæknigeiranum í brennidepli
, By Gangverk

Árangur í tæknigeiranum getur tekið á sig margar myndir og starfsþróun fylgir sjaldnast beinni línu. Í síðasta mánuði var fullt hús í húsakynnum Gangverks þegar við tókum á móti vinum okkar hjá Vertonet á sérstöku kvöldi þar sem markmiðið var að deila sögum og fagna vegferð þeirra mögnuðu kvenna sem móta framtíð tæknigeirans.
Fátt byggir betri brýr í tæknigeiranum en salur fullur af hvetjandi sögum, góðum samræðum og örlitlu kampavíni.

Vertonet eru íslensk samtök sem hafa það að markmiði að efla konur og kvár í upplýsingatækni. Samtökin leggja áherslu á að styrkja tengsl, skapa tækifæri til náms og miðla gagnkvæmum stuðningi, um leið og þau beita sér fyrir auknum fjölbreytileika í greininni.

Kvöldið leiddi saman fólk frá Gangverki, dótturfélögunum Basta og dala.care og Vertonet. Það sýndi að það eru margar leiðir til að ná árangri í tæknigeiranum – og ekki síður margar leiðir til að styðja hvert annað á þeirri vegferð.

Raddirnar sem móta framtíð tæknigeirans
Við heyrðum frá mögnuðum konum sem ryðja úr vegi hindrunum, þróa vörur og endurskilgreina hvað árangur í tæknigeiranum getur þýtt. Hver fyrirlesari hafði sitt einstaka sjónarhorn fram að færa og veitti innsýn í þær fjölmörgu leiðir sem konur fara til að fóta sig og ná árangri í greininni.
Ása Rún Björnsdóttir (rekstrarstjóri Gangverks) bauð gesti velkomna og skálaði fyrir kvöldinu. Hún sagði frá því hvað drífur Gangverk áfram og lagði grunninn að erindunum sem á eftir komu.

Elísabet Ósk Stefánsdóttir (formaður Vertonet) kynnti nokkur af spennandi verkefnum sem Vertonet hafði leitt á árinu. Eitt þeirra stóð sérstaklega upp úr: The Vertonet Playbook, leiðarvísir um hvernig efla megi fjölbreytileika, jöfnuð og inngildingu á vinnustöðum.
Ingunn Róbertsdóttir (hönnunarstjóri Basta) og Berglind Brá Jóhannsdóttir (hönnunarstjóri dala.care) gáfu hreinskilna innsýn í líf hönnuða í sprotafyrirtækjum. Þær sögðu frá áskorununum sem fylgja því að vera einu skapandi kraftarnir á bak við vörurnar. Að sinna mörgum hlutverkum í einu, taka skjótar ákvarðanir og takast á við þá einangrun sem stundum fylgir fámennum teymum er ekki fyrir viðkvæma. Ráð þeirra? Að setja framfarir ofar fullkomnun.
Pála Ögn Stefánsdóttir (forritari hjá Gangverki) sagði frá því hvernig tvöfalt hlutverk hennar sem forritari og kennari fléttast saman. Hún trúir á mikilvægi þess að sjá möguleika í öðrum og hjálpa þeim að koma auga á þá sjálf. Með vísan til reynslu sinnar af kennslu lagði hún áherslu á að fólk lærir á ólíkan hátt og að hjálpin við að uppgötva eigin möguleika byrji á því að sýna fólki hvað er hægt.
Ragnheiður Ásta Pétursdóttir (delivery lead hjá dala.care) fór með okkur í gegnum tvo áratugi í tæknigeiranum. Leið hennar lá um hjúkrunarnám, fjártækni og fjölbreytt upplýsingatækniverkefni, allt frá þróun samþættinga til afhendingar á geisladiskum (nostalgía af bestu gerð!). Hún miðlaði einföldum en mikilvægum sannleika: starfsferillinn getur tekið óvæntar beygjur og það er allt í lagi að hafa ekki öll svörin strax.

Taylor Garcia van Biljon↗ (UX-hönnuður og rannsakandi hjá Gangverki) lokaði dagskránni með hvetjandi erindi þar sem hún varpaði nýju ljósi á mikilvægi þess að fara óhefðbundnar leiðir. Sem innflytjandi sagði hún opinskátt frá þeim hindrunum sem hún hefur mætt og hvernig hún hefur unnið að því að breyta því sem aðrir hafa litið á sem veikleika í styrkleika. Hún minnti gesti á að góð hönnun tilheyri ekki aðeins einni atvinnugrein. Hún er síbreytilegt hugsunarferli og lífsviðhorf sem tekur mið af öðru fólki.
Á milli erinda iðaði salurinn í mingli og hlátri og einstaka sinnum heyrðist hrópað „Bingó!“ í tengslaleik Vertonet. Þetta var kvöld til að fagna sigrum, deila áskorunum og vekja athygli á þeim mikilvægu áhrifum sem konur hafa á mótun framtíðar tæknigeirans.