Gangverk og Helix taka höndum saman um að umbylta íslensku heilbrigðiskerfi
, By Gangverk

Gangverk hefur hafið tímamótasamstarf við heilbrigðistæknifyrirtækið Helix, með það að markmiði að bæta íslenska heilbrigðiskerfið. Verkefnið er liður í nútímavæðingu rafrænna sjúkraskráa á Íslandi og mun hafa veruleg áhrif á hvernig heilbrigðisþjónusta er veitt og henni stjórnað um allt land.
Sjúklingurinn í forgrunni
Kjarninn í samstarfinu er sameiginleg sýn okkar á mikilvægi þess að nýta tíma heilbrigðisstarfsfólks sem best. Of mikill tími fer í endurtekin verk sem hægt væri að einfalda með sjálfvirkni. Arna Harðardóttir, forstjóri Helix, leggur áherslu á að nýsköpun og tæknilausnir séu lykilatriði í því að létta álagi af heilbrigðiskerfinu, draga úr skriffinnsku og bæta þjónustu:
„Eins og staðan er í dag ver heilbrigðisstarfsfólk of miklum tíma í pappírsvinnu, sem tekur tíma og athygli frá þjónustu við sjúklinga. Fólk er verðmætasta auðlind heilbrigðisþjónustunnar, en tími þess er takmarkaður. Hér eru mikil tækifæri til að þróa lausnir þar sem einstaklingurinn er í forgrunni. Við trúum því að með því að efla einstaklinga og gera þeim kleift að taka virkari þátt megi létta álagi af heilbrigðisstarfsfólki. Sérstaða Íslands með fámennan íbúafjölda, mikla útbreiðslu háþróaðrar tækni og samræmt heilbrigðiskerfi, skapar kjöraðstæður til að vera í fararbroddi nýsköpunar í heilbrigðistækni,“ segir Arna Harðardóttir, forstjóri Helix.
Í 30 ár hefur teymi Helix gegnt lykilhlutverki í þróun miðlægra tæknilausna fyrir íslenska heilbrigðiskerfið. Þar á meðal eru rafræna sjúkraskrárkerfið Saga, Heilsuvera, heilbrigðisnetið Hekla og skimunar- og bólusetningarkerfin sem voru tekin í notkun í Covid faraldrinum.
Kjarninn í verkefninu er heildstæð endurhönnun á rafrænu sjúkraskrárkerfi Íslands. Hún mun ryðja brautina fyrir skilvirkari heilbrigðisþjónustu, draga úr umsýslu og gefa heilbrigðisstarfsfólki meiri tíma til að einbeita sér að heilsufarslegum árangri sjúklinga.
„Við berum mikla virðingu fyrir þeirri þekkingu og reynslu sem býr í íslenska heilbrigðiskerfinu og hlökkum til að gera það aðgengilegra og skilvirkara fyrir alla, bæði heilbrigðisstarfsfólk og almenning,“ segir Atli Þorbjörnsson, forstjóri Gangverks. „Teymið okkar býr yfir mikilli sérþekkingu á því að uppfæra, umbreyta og bæta mikilvæg kerfi á meðan þau eru í fullum rekstri, jafnvel þegar um lífsnauðsynleg kerfi er að ræða. Þetta verður krefjandi verkefni, en við erum full tilhlökkunar yfir þeim fjölmörgu tækifærum sem felast í því að bæta þjónustu við sjúklinga.“
Nýr kafli í heilbrigðisþjónustu
Gangverk hefur verið í fararbroddi stafrænnar nýsköpunar frá árinu 2012 og starfað þvert á atvinnugreinar, allt frá heilbrigðisþjónustu og bankastarfsemi til netverslunar og ferðaþjónustu. Við höfum gegnt mikilvægu hlutverki í nútímavæðingu alþjóðlegra fyrirtækja á borð við Sotheby’s og CBS og í umfangsmikilli umbreytingu TheKey, eins stærsta fyrirtækis Bandaríkjanna á sviði heimaþjónustu.
Þekking okkar á kerfissamþættingu, gagnastjórnun og skýjaarkitektúr gerir okkur kleift að þróa skalanlegar, öruggar og notendavænar heilbrigðislausnir - lausnir sem heilbrigðisgeirinn þarf á að halda. Í samstarfi við Helix eru teymin okkar vel í stakk búin til að nýta víðtæka reynslu sína við þróun næstu kynslóðar lausna sem styrkja stöðu bæði sjúklinga og heilbrigðisstarfsfólks.
Samstarfið snýst um meira en tækni. Við erum staðráðin í að stuðla að umbreytingu heilbrigðisþjónustunnar á tímum þegar greinin stendur frammi fyrir sífellt meiri áskorunum. Þetta er aðeins upphafið að spennandi samstarfi. Við munum deila frekari fréttum eftir því sem verkefninu vindur fram, fylgist með!
Viltu vita meira um hvernig samstarfsverkefni Gangverks stuðla að umbreytingum í heilbrigðisþjónustu og öðrum atvinnugreinum? Hafðu samband.
Want to learn more about how our partnerships are transforming healthcare and other industries? Connect with us.