Last.fm og Gangverk hljóta bronsverðlaun á Lovie-verðlaununum fyrir sjónræna framsetningu gagna

, By Gangverk
Last.fm og Gangverk hljóta bronsverðlaun á Lovie-verðlaununum fyrir sjónræna framsetningu gagna
Í síðasta mánuði sögðum við frá því að Last.fm og Gangverk hefðu komist í úrslit Lovie-verðlaunanna, sem eru virtustu og einu raunverulega samevrópsku verðlaunin sem veitt eru fyrir framúrskarandi verkefni á netinu á sviði menningar, tækni og viðskipta.
Nú þegar almennri kosningu er lokið getum við stolt sagt frá því að verkefnið okkar, Last.fm 2023 Playback Experience, hefur hlotið bronsverðlaun í flokknum „Best Use of Data Visualization“.
Verðlaunin eru viðurkenning fyrir hvernig við höfum lífgað við hlustunargögn notenda með gagnvirkri upplifun sem setur notandann í forgrunn. Hún gerir tónlistaráhugafólki kleift að skoða og kanna eigin hlustunarvenjur á nýjan og persónulegan hátt. Teymið okkar tók þátt í 14. verðlaunahátíð Lovie-verðlaunanna í London og það var frábært að hitta þar svo margt hæfileikaríkt fólk og verða hluti af Lovie-samfélaginu.
„Það er okkur heiður að vera í hópi framúrskarandi stafrænna verkefna í Evrópu sem hafa vakið athygli fyrir hönnun, frásögn og virkni,“ segir Ingvi Guðmundsson, hönnunarstjóri Gangverks.
"„Í verkefninu fólst ekki aðeins að birta gögn, heldur einnig að auka ánægjuna af því að uppgötva, upplifa og deila tónlist. Bronsverðlaunin eru til marks um hvernig vel útfærð sjónræn framsetning gagna getur bæði miðlað upplýsingum og vakið spennu, jafnvel gleði,“ segir Ingvi.
Ingvi Gudmundsson, Head of Design at Gangverk
Hvert smáatriði upplifunarinnar var hannað með hlustandann í huga, allt frá áberandi viðmóti til þess hversu auðvelt er að kanna eigið tónlistarár. Playback gaf notendum líflega leið til að rifja upp tónlistarferðalag sitt á árinu. Með því að breyta gögnum í gagnvirka frásögn sem hægt er að deila styrktum við tengsl notenda við tónlistina sem þeir elska. Um leið efldum við ímynd Last.fm sem frumkvöðuls á sviði tónlistaruppgötvunar.
Það eru mikil forréttindi að hljóta Lovie-verðlaun. Viðurkenningin varpar ljósi á einstaka sögu Last.fm á sviði tónlistargagna. Í meira en tvo áratugi hefur Last.fm hjálpað tónlistaráhugafólki að rifja upp tónlistarferðalag sitt, halda utan um hlustunarvenjur sínar og sjá hvernig það stendur í alþjóðlegu samfélagi hlustenda.
"„Samstarfið við Gangverk hefur fært Playback nýja orku, hugmyndir og aukna þátttöku og við hlökkum til að kynna spennandi nýjungar á næstunni. Verðlaunin fagna því sem við höfum áorkað og hvetja okkur áfram. Við viljum halda áfram að gera tónlistaruppgötvun persónulega og merkingarbæra,“ segir Michael Horan, framkvæmdastjóri vörumála hjá Last.fm.
Michael Horan, VP of Product at Last.fm
Teymi Gangverks og Last.fm.
Teymin okkar eru stolt af verðlaununum og þau veita okkur innblástur til að halda áfram að skapa eftirminnilegar stafrænar upplifanir sem höfða til fólks. Samstarfið að þessu nýstárlega verkefni hefur verið bæði spennandi og gefandi og hvatt okkur til að hugsa á skapandi hátt um hvernig gögn geta styrkt tengsl notenda við vörumerki og viðfangsefni. Við hlökkum til fleiri verkefna þar sem gögn og hönnun mætast og segja sögur sem skipta máli.
Our teams are honored and inspired by this award. It fuels our dedication to creating memorable digital experiences that engage and resonate with audiences. Working together on such an innovative project has been both exciting and rewarding, pushing us to think creatively about how data can deepen user connection. We are looking forward to more projects that continue to shape the digital landscape, where data and design come together to tell stories that matter.