Gangverk í úrslitum Lovie-verðlaunanna 2024 fyrir framúrskarandi sjónræna framsetningu gagna

, By Gangverk
Gangverk í úrslitum Lovie-verðlaunanna 2024 fyrir framúrskarandi sjónræna framsetningu gagna
Við erum einstaklega stolt að segja frá því Gangverk er komið í úrslit 14. Lovie-verðlaunanna og hefur verið tilnefnt til heiðursviðurkenningar fyrir verkefni okkar með Last.fm og virtu fyrirtæki á sviði lúxusferða!
Við vonumst til að fá stuðning þinn við að vinna People's Lovie-verðlaunin. Þú getur hjálpað okkur með því að greiða atkvæði. Lovie-verðlaunin eru meðal virtustu viðurkenninga Evrópu fyrir framúrskarandi verkefni á sviði menningar, tækni og viðskipta á netinu. Verkefnin okkar komust í hóp 30% efstu innsendra verkefna, sem er mikil viðurkenning á vinnu okkar við að þróa framsæknar lausnir á sviði sjónrænnar framsetningar gagna og stafrænnar upplifunar á vef og í símum.
Last.fm Playback 2023, sem komst í úrslit í flokknum „Best Use of Data Visualization“, endurhugsaði hvernig notendur geta nýtt sér gögn um tónlistarhlustun sína. Með því að umbreyta hlustunargögnum í heildstæða og sjónrænt aðlaðandi upplifun fengu notendur Last.fm dýpri innsýn í hlustunarvenjur sínar. Niðurstaðan var persónulegri og áhugaverðari upplifun sem sýnir hvað hægt er að gera þegar gögn, nýstárleg hönnun og tæknileg útfærsla fara saman.
Auk þess komst verkefni okkar fyrir leiðandi fyrirtæki í lúxusferðum á stuttlista í flokknum „Mobile Excellence“. Verkefnið gjörbreytti stafrænni upplifun af lúxusleiðangurssiglingum og auðveldaði ævintýragjörnum ferðalöngum að skoða áfangastaði og ferðaáætlanir í farsímum sínum.
Ekkert af þessu hefði verið mögulegt án þeirra frábæru tæknisamstarfsaðila sem studdu okkur í verkefnunum. Við viljum sérstaklega þakka Amazon Web Services (AWS), Segment, Amplitude, Fullstory, Optimizely, Contentful, Bynder, Vercel, Algolia, Versonix Corporation og Mapbox.
Kjóstu Gangverk á vote.lovieawards.com fyrir 17. október og hjálpaðu okkur að vinna People's Lovie-verðlaunin!
Atkvæði ykkar og áframhaldandi stuðningur hvetja okkur áfram í þeirri vegferð að víkka út mörk stafrænnar nýsköpunar. Takk fyrir að vera með okkur!
Gangverk sérhæfir sig í að skapa framúrskarandi stafrænar upplifanir, líkt og þær sem við þróuðum fyrir Last.fm og leiðandi fyrirtæki í lúxusferðum og hlutu viðurkenningu Lovie-verðlaunanna. Hvort sem um er að ræða gagnasjónræna framsetningu, nýsköpun í farsímalausnum eða vefþróun, höfum við þekkinguna til að hjálpa þér að gera framtíðarsýn þína að veruleika. Hafðu samband og kynntu þér hvað við getum gert saman.
Gangverk specializes in crafting exceptional digital experiences, just like the award-nominated projects we delivered for Last.fm and a luxury travel brand. Whether it's data visualization, mobile innovation, or web development, get in touch to learn how we can bring your vision to life.