Aðgengi sem forskot: Af hverju inngildandi hönnun er betri bisness
, By Ingvi Gudmundsson

Ingvi Guðmundsson, hönnunarstjóri Gangverks, tók þátt í sófaspjalli ásamt landssamtökunum Þroskahjálp og þjónustuhönnunarstofunni Mennskri ráðgjöf. Þar var rætt um hvernig nýta megi tækni til að efla fatlað fólk og stuðla að auknu aðgengi og inngildingu.
Af hverju hönnum við yfirleitt vörur fyrir fólk sem er ungt og heilsuhraust og býr yfir dæmigerðri líkamlegri og vitsmunalegri getu?
Þessi spurning var ofarlega í huga á Living Technology, málþingi um aðgengi sem haldið var í Reykjavík. Þar koma saman fatlað fólk, fólk úr tæknigeiranum, háskólasamfélaginu, fulltrúar stjórnvalda og aðrir sem láta sig jafnrétti og betri tækni fyrir alla varða.
Hönnun fyrir alla
Umræðan dró fram einn algengan veikleika í þróun tæknilausna: Þegar við þróum tæknivörur hönnum við, prófum og þróum þær gjarnan fyrir fólk sem sér vel, heyrir vel og býr yfir góðri vitsmunalegri getu. Samt er talið að um 1,3 milljarðar manna, eða 16% jarðarbúa, búi við verulega fötlun (Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin). Þetta er íbúafjöldi á við Indland eða Kína, stór hópur fólks sem ekki er tekið tillit til í hönnunarferlinu.
Þegar þarfir fatlaðs fólks eru hunsaðar skapast ýmis vandamál sem hefði auðveldlega mátt koma í veg fyrir. Eitt dæmi eru rafræn skilríki á Íslandi. Þjónustan gerir fólki kleift að nota rafræn skilríki í símanum til að skrá sig inn í banka, greiða fyrir vörur og skila skattframtali. Þótt rafræn skilríki séu nauðsynleg til að geta tekið fullan þátt í íslensku samfélagi er nánast ómögulegt fyrir fatlað fólk að sækja um þau án aðstoðar.
Þjónusta sem er sérstaklega hönnuð fyrir fatlað fólk getur jafnvel horft fram hjá þörfum sem eru mikilvægar fyrir þann hóp. Á Íslandi býðst fötluðu fólki til dæmis strætókort á sérkjörum. Í upphafi var hægt að kaupa staka miða í appi. Þegar í ljós kom að ófatlað fólk nýtti sér ódýrari miðana var gerð krafa um að fatlað fólk keypti mánaðarkort á sölustað og sýndi þar fram á fötlun sína. Ekki aðeins getur verið langt að fara á næsta sölustað, heldur er mánaðarkortið dýrara og óhentugra en að kaupa stakar ferðir. Fyrirkomulagið færir alla fyrirhöfnina yfir á notandann og grefur þannig undan aðgengi að þjónustunni.
Hvernig má gera vöruhönnun og -þróun inngildandi?
Ein augljós lausn er að tryggja að hagsmunaaðilar og endanotendur taki þátt í þróunarferlinu frá upphafi. Samstarf við ólík hagsmunasamtök fatlaðs fólks gæti skapað ávinning fyrir alla. Fyrirtæki gætu til dæmis niðurgreitt aðgang að þjónustu fyrir félagsmenn samtakanna. Í stað þess að félagsmenn legðu eingöngu sitt af mörkum með því að prófa nýjar vörur gætu samtökin fengið greitt fyrir þátttökuna og þannig aflað dýrmæts fjár til eigin starfsemi. Notendaprófanir með fötluðu fólki gætu síðan hjálpað til við að þróa og bæta vörur þannig að þær virki ekki aðeins fyrir alla, heldur séu líka auðveldari í notkun fyrir alla.
Viðskiptaleg rök fyrir fjárfestingu í notendaprófunum
Tilgangur Living Technology-málþingsins var að vekja athygli á fötluðu fólki, sérstaklega meðal fyrirtækja og stofnana sem hafa tækifæri til að þróa þjónustu fyrir þennan hóp. Mörg fyrirtæki líta fram hjá fötluðu fólki sem mikilvægum markhópi. Eins og í allri vöruhönnun skiptir skýr skilningur á markhópnum sköpum fyrir árangur vörunnar.
Þetta kom berlega í ljós þegar Gangverk vann með fyrirtæki í heimaþjónustu að þróun smáforrits. Fyrirtækið gerði ráð fyrir að umönnunarfólkið sem notaði appið væri á aldrinum 25–45 ára. Notendaviðtöl Gangverks leiddu hins vegar í ljós að notendahópurinn samanstóð aðallega af konum yfir sextugu, af ólíkum þjóðernum og með annað móðurmál en ensku. Vegna þessarar röngu myndar af markhópnum þurfti að endurhanna appið frá grunni, meðal annars með stærra letri og einfaldara viðmóti, til að mæta þörfum raunverulegra notenda.
Spurningarnar í upphaflegri könnun um vöruna höfðu mótast af hagsmunum og hugmyndum fulltrúa fyrirtækisins sem höfðu ekki verið í beinum samskiptum við endanotendur. Önnur hugmynd sem kom snemma fram var að búa til stórt spjallsvæði sem tengdi saman umönnunarfólk, svæðisskrifstofur og stjórnendur. Fyrirtækið áttaði sig ekki á því að fjórða samskiptaleiðin, til viðbótar við SMS, símtöl og tölvupóst, myndi aðeins auka á ringulreiðina.
Með frekari notendarannsóknum komst Gangverk að því að vaktaskipti væru helsta uppspretta ringulreiðar í samskiptunum. Þegar þurfti að manna vakt sendu skrifstofurnar fjöldapóst á allt umönnunarfólk í borginni. Fólkið vildi gjarnan skipta yfir á betur launaðar vaktir og fljótlega fóru þúsundir slíkra skilaboða að berast skrifstofu fyrirtækisins.
Til að leysa vandann bjó Gangverk til frumgerð með yfirliti yfir „Lausar vaktir“, þar sem vaktirnar voru flokkaðar eftir staðsetningu. Þar gat umönnunarfólk séð hvaða vaktir voru lausar og einfaldlega valið þær sem hentuðu. Þannig var hægt að leysa vandann án þess að bæta við enn einni samskiptalausninni.
Með markvissri viðleitni til að skilja þarfir raunverulegra endanotenda og taka mið af þeim hefði rétta lausnin getað komið í ljós mun fyrr. Fyrirtæki veigra sér oft við að fjárfesta í auknum notendaprófunum, þótt þær geti komið í veg fyrir vandamál síðar meir og sparað bæði tíma og peninga.
Umfram lágmarkskröfur
Að uppfylla kröfur ADA (bandarísku laganna um réttindi fatlaðs fólks) er algengt markmið fyrirtækja. Mörg þeirra gera sér þó einnig grein fyrir því að forgangsröðun aðgengis skilar verulegum ávinningi til lengri tíma sem réttlætir auðveldlega upphaflegan kostnað. Inngildandi hönnun stækkar notendahóp vöru með því að opna fyrir nýja og fjölbreyttari markaði, skapa tækifæri til aukinna tekna og hraða nýsköpun.
Microsoft sýndi fram á gildi inngildandi hönnunar þegar fyrirtækið setti Xbox Adaptive Controller á markað árið 2018. Með því að þróa sérhannaða fjarstýringu sem gerir fleirum kleift að spila tölvuleiki náði Microsoft til hóps fatlaðra spilara sem hafði lengi verið vanræktur. Fjarstýringin opnaði einnig dyr að nýju samstarfi, meðal annars við bandaríska ráðuneytið sem fer með málefni hermanna, og styrkti viðskiptaleg rök fyrir áframhaldandi fjárfestingu fyrirtækisins í aðgengi. Árið 2024 kynnti Microsoft nýja einingaskipta fjarstýringu sem er sérstaklega hönnuð fyrir fatlaða spilara.
Ný fyrirtæki sem leggja áherslu á aðgengi eru einnig að koma fram og sýna fram á gildi og mikilvægi inngildingar. Eitt dæmi er danska tæknifyrirtækið Be My Eyes. Það býður upp á ókeypis app sem tengir blint og sjónskert fólk við sjáandi sjálfboðaliða sem veita sjónræna aðstoð í rauntíma. Be My Eyes er með notendur í yfir 150 löndum og á í samstarfi við fyrirtæki á borð við Google, LinkedIn og Barilla. Það sýnir að eftirspurn eftir aðgengilegum og inngildandi lausnum er mikil um allan heim.
Þátttaka í Living Technology málþinginu minnti okkur á að inngildandi hönnun er einfaldlega betri bisness. Hjá Gangverki höfum við séð af eigin raun hvernig markvissar notendarannsóknir og inngildandi hönnun geta leitt til betri og snjallari vara sem leysa raunveruleg vandamál.
Fjárfesting í inngildandi rannsóknum og hönnun hjálpar til við að móta framtíð þar sem tæknin er raunverulegt valdeflingartæki og gerir öllum kleift að taka fullan þátt í samfélaginu, óháð færni eða getu. Fyrirtæki sem leggja í slíka fjárfestingu sýna að aðgengi er ekki aðeins það rétta að gera – það er líka samkeppnisforskot.